Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 437, 122. löggjafarþing 98. mál: virðisaukaskattur (sala til útlendinga).
Lög nr. 115 16. desember 1997.
Þingskjal 437, 122. löggjafarþing 98. mál: virðisaukaskattur (sala til útlendinga).
Lög nr. 115 16. desember 1997.
Lög um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 12. gr. laganna:- 10. tölul. orðast svo: Sala á þjónustu til aðila sem hvorki hafa búsetu né starfsstöð hér á landi, enda sé þjónustan nýtt að öllu leyti erlendis. Skattskyld þjónusta, sem veitt er í tengslum við menningarstarfsemi, listastarfsemi, íþróttastarfsemi, kennslustarfsemi og aðra hliðstæða starfsemi sem fram fer hér á landi og er undanþegin skattskyldu skv. 3. mgr. 2. gr. laganna, telst ávallt nýtt hér. Jafnframt er sala á þjónustu til aðila sem hvorki hafa búsetu né starfsstöð hér á landi undanþegin skattskyldri veltu þó að þjónustan sé ekki nýtt að öllu leyti erlendis ef kaupandi gæti, væri starfsemi hans skráningarskyld hér á landi, talið virðisaukaskatt vegna kaupa þjónustunnar til innskatts, sbr. 15. og 16. gr. Eftirtalin þjónusta fellur undir þennan tölulið:
- framsal á höfundarrétti, rétti til einkaleyfis, vörumerkis og hönnunar, svo og framsal annarra sambærilegra réttinda,
- auglýsingaþjónusta,
- ráðgjafarþjónusta, verkfræðiþjónusta, lögfræðiþjónusta, þjónusta endurskoðenda og önnur sambærileg sérfræðiþjónusta, þó ekki vinna við eða þjónusta sem varðar lausafjármuni eða fasteignir hér á landi,
- tölvuþjónusta, önnur gagnavinnsla og upplýsingamiðlun,
- kvaðir og skyldur varðandi atvinnu- eða framleiðslustarfsemi eða hagnýtingu réttinda sem kveðið er á um í þessum tölulið,
- atvinnumiðlun,
- leiga lausafjármuna, þó ekki neins konar flutningatækja,
- þjónusta milligöngumanna sem fram koma í nafni annars og fyrir reikning annars að því er varðar sölu eða afhendingu þjónustu sem um ræðir í þessum tölulið,
- fjarskiptaþjónusta.
- 11. tölul. orðast svo: Þjónusta sem felst í endurgreiðslu á virðisaukaskatti til aðila búsettra erlendis.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 35. gr. laganna:- Í stað orðanna „skattskylda þjónustu“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: þjónustu sem talin er upp í 10. tölul. 1. mgr. 12. gr.
- Við bætist ný málsgrein er orðast svo:
3. gr.
Í stað orðanna „erlendir ferðamenn“ í 1. mgr. 43. gr. laganna kemur: aðilar búsettir erlendis.4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Þó skulu ákvæði fyrri efnisliðar 1. gr. um sölu á þjónustu til erlendra aðila gilda frá og með 1. júlí 1997.Samþykkt á Alþingi 8. desember 1997.