Valgerður Sverrisdóttir:
Hæstv. forseti. Út af þeirri umræðu sem fram hefur farið vil ég minna á að störf Alþingis eru annað og meira en fundir í þessum þingsal. Það eru nefndastörf og fundir þingflokka. Því er mikilvægt að þingið komi saman og þingmenn séu til taks þegar þessi mál sem sjútvn. hefur til umfjöllunar verða afgreidd frá nefndinni. Dagurinn í dag er einmitt hugsaður þannig að þingflokkar geti komið saman og fjallað um þær tillögur sem liggja fyrir um málið. Það er því ekki rétt sem hér kemur fram að við séum að bíða. Við höfum full not fyrir þann tíma sem er fram undan.
Ég undrast að hv. þingmenn telja rétt að fresta umfjöllun um þetta mál til 21. eða 19. þessa mánaðar eins og starfs\-áætlun hafði kveðið á um, að þing kæmi saman á þeim degi, vegna þess að efnt var til sérstakrar utandagskrárumræðu af hálfu stjórnarandstöðunnar eftir að hæstaréttardómur féll í sambandi við sjávarútvegsmálin þar sem ríkisstjórnarflokkarnir voru sérstaklega hvattir til þess að taka sem fyrst á þessu máli. Mér finnst vera komið annað hljóð í strokkinn ef stjórnarandstaðan hvetur til þess núna að því verði frestað að ljúka þessu mikilvæga máli.