Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 11. janúar 1999, kl. 14:40:37 (2955)

1999-01-11 14:40:37# 123. lþ. 52.1 fundur 343. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðileyfi o.fl.) frv. 1/1999, Frsm. meiri hluta KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 123. lþ.

[14:40]

Frsm. meiri hluta sjútvn. (Kristinn H. Gunnarsson) (andsvar):

Herra forseti. Okkur er ljóst að þingmenn Austurlands hafa miklar áhyggjur af því ástandi sem upp er komið á Breiðdalsvík og hv. 1. þm. Austurl., Halldór Ásgrímsson utanrrh., hefur rætt þetta mál alveg sérstaklega við mig.