Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 11. janúar 1999, kl. 22:37:33 (3016)

1999-01-11 22:37:33# 123. lþ. 52.1 fundur 343. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðileyfi o.fl.) frv. 1/1999, KrP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 123. lþ.

[22:37]

Kristinn Pétursson (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. 10. þm. Reykn. hefur eitthvað misskilið það sem ég sagði því ég hef ekki verið að rekja neinar kenningar sem ég er með. Ég er að rekja sögulegar staðreyndir, hvað veiðiráðgjafar sögðu og hvað gerðist. Það eru ekki kenningar, hæstv. forseti. Það er upprifjun á sögulegum staðreyndum. Og það er ekki óábyrgt, hæstv. forseti, að segja sannleikann. Það eru ekki dylgjur og það eru ekki gífuryrði.