Þingfrestun

Miðvikudaginn 13. janúar 1999, kl. 17:58:17 (3122)

1999-01-13 17:58:17# 123. lþ. 56.96 fundur 215#B þingfrestun#, forsrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur, 123. lþ.

[17:58]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands gjörir kunnugt: ,,Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 123. löggjafarþings, frá 13. janúar 1999 til 2. febrúar 1999.

Gjört í Reykjavík, 13. janúar 1999.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 123. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.