Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Það samkomulag sem ég fór yfir er samkomulag allra þeirra sem standa að samfylkingunni. Þar er fyrst og fremst um það að ræða að taka upp viðræður um þau ákvæði samningsins sem nú eru að falla úr gildi og samfylkingin er samstarf þessara þriggja aðila til fjögurra ára. Við göngum frá okkar markmiðum og okkar verkefnaskrá til næstu fjögurra ára. Á þeim tíma er ekki áformað að segja sig úr NATO. Það er mjög skýrt í okkar plöggum. Þó að ég sjálf hafi verið hlynnt því og sé hlynnt því að Ísland eigi að standa utan hernaðarbandalaga, þá er þetta samkomulag sem við höfum gert. Við það munum við að sjálfsögðu standa okkar á milli. Af hverju segjum við þetta? Vegna þess að við teljum að næstu fjögur ár eigi að nota til að fara yfir þessi mál öll og marka skýra stefnu um það hvert við viljum fara í framtíðinni í öryggis- og friðarmálum Íslands.