Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Okkur í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði, er fullkunnugt um að hæstv. utanrrh., Halldór Ásgrímsson, er okkur ósammála um margt í utanríkismálum. Hann er ósammála okkur í Evrópumálum. Hann er ósammála okkur gagnvart NATO og hann er ósammála okkur í málefnum Íraks. Hann er hins vegar sammála því að beita loftárásum gegn því ríki sem hafa valdið dauða fjölda saklausra borgara og hann er sammála þeirri stefnu að beita þá þjóð viðskiptaþvingunum sem hafa leitt til þess að hátt á aðra milljón saklausra borgara hefur látið lífið. Við vitum að við erum ósammála um allt þetta, en hitt er ekki spurning um að vera sammála eða ósammála þegar kemur að kjarnorkuvopnum. Þar segir hæstv. utanrrh. að NATO hafi áskilið sér rétt til að beita þeim vopnum og hann er sammála þeirri afstöðu en hnýtir því við að hann sé sannfærður um að þeim verði ekki beitt. Eitthvað í þá veru orðaði hann það. Hér er ég kominn að því sem ég vildi segja að er ekki spurning um að vera sammála eða ósammála, heldur snýr að staðreyndum. Staðreyndin er sú að kjarnorkuvopnum hefur verið beitt af hálfu þessara ríkja í árásarskyni, í Nagasaki og Hiroshima. Nú er hæstv. utanrrh. fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar væntanlega að árétta að það sé réttur þjóða, það sé réttur réttra þjóða væntanlega, að beita þessum vopnum. Mér finnst þetta vera mjög alvarlegt mál sem kallar í raun á miklu lengri og ítarlegri umræðu. En fleiri dagskrármál tengjast þessu hér í dag, öll að frumkvæði okkar í þingflokki óháðra sem eigum aðild að hinni nýju Vinstri hreyfingu -- grænu framboði. Ég verð að segja eitt, hæstv. forseti: Það er greinilega þörf á slíkri hreyfingu til að halda þessum gildum á lofti.