Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég hef marglýst þeirri skoðun minni að nýsköpun opinberra aðila sé hvorki sérstaklega gæfurík né gefi mikinn árangur. Ég held að opinberir starfsmenn eigi að sinna öðru en nýsköpun. Ég tel betra að búa til umhverfi fyrir nýsköpun í þjóðfélaginu. Það væri líklegra til að menn næðu árangri, þ.e. að einstaklingar stundi nýsköpun sjálfir og taki áhættu.
Í þessu frv. er gert ráð fyrir því að viðhalda ákveðinni deild áfram, viðhalda einu batteríinu lengur en til stóð. Spurning mín til hæstv. iðnrh. er eftirfarandi: Hve mikið fé er í þessari deild? Af hverju má ekki nýta það fé innan Nýsköpunarsjóðsins eins og til stóð?