Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Þriðjudaginn 09. febrúar 1999, kl. 13:58:35 (3366)

1999-02-09 13:58:35# 123. lþ. 61.6 fundur 223. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# (vöruþróunar- og markaðsdeild) frv., ÁE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 123. lþ.

[13:58]

Ágúst Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég held að hér misminni hæstv. ráðherra eitthvað varðandi þetta efni. Ég hef rætt ítarlega á hinu háa Alþingi um endurskipulagningu á sjóðakerfinu á sínum tíma, þegar umræddir sjóðir voru stokkaðir eins og ég nefndi í ræðu minni. Ég benti á það, þegar Fjárfestingarbanki atvinnulífsins og Nýsköpunarsjóður og allt þetta var stokkað upp, og rakti það skilmerkilega. Ég sé ekki ástæðu til að fara yfir þá umræðu. Ég vildi samt biðja hæstv. ráðherra um að halda sig við staðreyndir í skoðanaskiptum og vera málefnalegur.