Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Þriðjudaginn 09. febrúar 1999, kl. 14:01:26 (3369)

1999-02-09 14:01:26# 123. lþ. 61.6 fundur 223. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# (vöruþróunar- og markaðsdeild) frv., ÁE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 123. lþ.

[14:01]

Ágúst Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Mér er ljúft að staðfesta það sem hv. þm. sagði. Það hefur oft komið fyrir að hann hafi greitt atkvæði á móti. Ég held ég hafi sagt að hann gerði það aldrei. Hann gerir það oftast að styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir að hann mótmæli stefnu hennar í einstökum atriðum en það hefur komið fyrir í einstaka tilvikum að hann hafi fylgt sinni sannfæringu til enda í atkvæðagreiðslum en það hefur hins vegar ekki verið mjög oft.