Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Hið rétta hefur komið fram í málinu, að hæstv. ráðherra hefur fengið rangar upplýsingar um afstöðu mína. Ég ætla ekki að elta meira ólar í sambandi við það. Hann hefði hins vegar verið maður að meiri ef hann hefði beðist afsökunar á þeim ummælum sem hann lét hér falla.