Styrktarsjóður námsmanna

Mánudaginn 15. febrúar 1999, kl. 17:45:48 (3614)

1999-02-15 17:45:48# 123. lþ. 65.18 fundur 464. mál: #A styrktarsjóður námsmanna# frv., MagnM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur, 123. lþ.

[17:45]

Magnús Árni Magnússon (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir þau svör sem komu fram og þykir mikið til þess koma að þar sé kominn bandamaður í baráttunni fyrir því að námsmenn hér á landi séu styrktir til náms jafnt í framhaldsskólum sem í háskólum og þá væntanlega einnig með tilliti til Lánasjóðs ísl. námsmanna.