Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þær umræður sem hér hafa farið fram. Það er alveg rétt sem bent var á af síðasta ræðumanni að Dalasýsla er sögulegt hérað, þar er saga á hverjum stað, hverjum hól og hverjum kletti. Það þekkja þeir sem þar hafa komið. Mjög mikilvægt er að skapa aðstöðu til þess á einhverjum sögustaðanna að þar sé hægt að taka á móti fólki. Ég spái því að þúsundir muni heimsækja Eiríksstaði á árinu 2000 og framvegis. Það mun líka hafa í för með sér að aðrir sögustaðir í Dalasýslu hljóta að verða byggðir upp með tilliti til þess að þeir geti tekið á móti fólki, eins og Staðarhóll, eins og Skarð, eins og Snóksdalur, eins og Kvennabrekka, eins og Sauðafell og fleiri og fleiri.
Ég lít því þannig á að verið sé að leggja inn á braut sem muni geta endurreist þetta byggðarlag líka úr þeirri kreppu og þeim vanda sem það hefur verið í og ég spái því að eftir ekki mörg ár verði fleiri ferðamenn á vettvangi þarna en víðast hvar annars staðar í héruðum þar sem svipað stendur á.
Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin og undirtektirnar í málinu almennt og ég þakka einnig fyrir þann áhuga menn hafa sýnt á Brattahlíðarverkefninu því að bersýnilegt er að á næsta ári verður einnig hægt að opna þar Eiríksbæ og Þjóðhildarkirkju og hraustmenni munu þá geta siglt upp til Grænlands og inn Eiríksfjörð og athugað hvernig hefur tekist til um hlutina í einstökum atriðum. Þó að á Íslendingi séu bara níu pláss geri ég ráð fyrir að hægt verði að hafa þar með nokkra fleiri báta fyrir vaska alþingismenn til að fara með í þá för.