Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Mér finnst hv. þm. fjalla af talsverðu alvöruleysi um það mikilvæga starf sem þau samtök vinna í okkar þjóðfélagi sem fá tekjur með þessum hætti (ÖJ: Ég fjallaði ekkert um ...) og geta ekki sinnt því starfi nema þeim sé tryggður tekjustofn. Þannig að hv. þm. (ÖJ: Þetta eru útúrsnúningar.) þarf ekki að láta sér koma á óvart að ég lýsi því yfir að ég sé ekki reiðubúinn að svipta þessi samtök þeim mikilvægu tekjustofnum sem þau hafa.
Í annan stað þarf hv. þm. heldur ekki að láta sér koma það á óvart að ég líti svo á að Alþingi hafi lýst því yfir að það hafi ekki séð ástæðu til þess að álykta öðruvísi en að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar þegar málið var afgreitt vegna þess að sá skilningur er ekki einasta bundinn í þingsköpum heldur í stjórnarskrá. Það er ekki hægt að líta með neinum öðrum hætti á afgreiðslu Alþingis en í samræmi við ákvæði þingskapa og stjórnarskrár.
Hitt er svo allt annað mál, eins og ég tók hér fram, að löngu áður en Alþingi ákvað að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar setti ríkisstjórnin að minni tillögu á fót sérstaka nefnd til þess að fjalla um framtíðarstefnumótun í happdrættismálum og til þess að leggja línur um þá löggjöf sem um þessi mál gilda. En það er orðið mjög brýnt að koma áfram heildarendurskoðun og bættri stjórnsýslu á því sviði.