Flugsamgöngur á Vestfjörðum

Miðvikudaginn 17. febrúar 1999, kl. 15:28:50 (3762)

1999-02-17 15:28:50# 123. lþ. 68.9 fundur 265. mál: #A flugsamgöngur á Vestfjörðum# fsp. (til munnl.) frá samgrh., samgrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 123. lþ.

[15:28]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef mun útboð á hinu Evrópska efnahagssvæði um þessar flugleiðir taka 7--8 mánuði. Ég legg áherslu á að útboðinu verði hraðað og vonast til að niðurstaða geti legið fyrir áður en snjóa tekur næsta haust.