Raforkuver

Fimmtudaginn 18. febrúar 1999, kl. 14:00:47 (3873)

1999-02-18 14:00:47# 123. lþ. 69.3 fundur 471. mál: #A raforkuver# (Vatnsfells-, Búðarháls- og Villinganesvirkjanir) frv., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 123. lþ.

[14:00]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ósnortin víðerni hálendisins eru almennt náttúruperlur. (Iðnrh.: Þetta er ekki þar. Þetta er einhver misskilningur.) Ákveðinn hluti landsins sem fer undir lón við þessar tvær virkjanir. Ég er að tala um nákvæmlega það.

Að öðru leyti vil ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin, en spyrja hann hvort umræddur tilflutningur á virkjanaheimild sé í fullu samráði og sátt við Landsvirkjun.