Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 25. febrúar 1999, kl. 17:54:52 (4096)

1999-02-25 17:54:52# 123. lþ. 72.2 fundur 277#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), utanrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur, 123. lþ.

[17:54]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil einnig geta þess að við höfum átt ágætt samstarf við UNIFEM. Við höfum styrkt þau samtök og nokkur verkefni sem þau standa fyrir. Við höfum einnig átt samstarf við deildina sem starfar á Íslandi. Það er því fullur vilji til þess í utanrrn. að sinna þessum verkefnum sem allra best og ég er sammála þeim áherslum sem hv. þm. var með í því sambandi.