Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég hef ekki dregið í land. Ég árétta það sem kom fram í orðum mínum og það sem meira er, ég gat þess í upphafi að þetta mál væri glænýtt, ég væri að koma hér með spurningar vegna þess hvernig það leit út. Og sannarlega hefur ekkert af því sem hér hefur komið fram enn þá gefið tilefni til þess að ekki sé ástæða til að skoða þetta mál mjög vel. Ég býst við að ráðherra geti staðfest hvers eðlis spurningar mínar voru og hver viðbrögð mín voru við því sem fram kom í greinargerðinni þannig að ég vísa þessum orðum til föðurhúsanna.