Frsm. efh.- og viðskn. (Einar Oddur Kristjánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 34/1998, um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða.
Efh.- og viðskn. þingsins flytur þetta mál. Þetta er mjög lítið frv., aðeins í fjórum greinum.
1. gr. skýrir sig reyndar alveg sjálf. Þar er að finna tillögu um að tekið verði tillit til þeirrar breytingar sem varð 1. janúar 1999 við stofnun Myntbandalags Evrópu en frá þeim tíma hefur evran tekið við af evrópsku mynteiningunni.
2. gr. frv. svo og reyndar sú 4. fjalla um smávægilegar breytingar við undirbúning á reglum á grundvelli laga. Hefur komið í ljós að það mun auðvelda Verðbréfaþingi Íslands að fylgjast með ýmsum reglum af því tagi sem um er að ræða ef bein fyrirmæli eru í reglum sem stjórnvöld hafa sett um opinbera skráningu verðbréfa í kauphöllum. Þetta er til þess að auðvelda þá starfsemi.
3. gr. er til komin vegna mistaka sem áttu sér stað. Þegar frv. til laga um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða var lagt fram á 122. löggjafarþingi. árið 1997 var gerð tillaga í 19. gr. að skylda til þess að gera yfirtökutilboð miðist við 331/3% atkvæðisréttar samkvæmt nánari ákvæðum frv., samanber lög nr. 34/1998, um starfsemi kauphalla.
Við umfjöllun málsins í efh.- og viðskn. var framangreind viðmiðun breytt í 50%, það yrði að hafa 50% atkvæða til slíkrar yfirtöku, samanber ákvæði í 19. gr. Hins vegar láðist að gera samsvarandi breytingu í 4. tölul. 19. gr. við endanlega afgreiðslu nefndarinnar og var því frv. samþykkt með upphaflegu viðmiðunarmarki, þ.e. 331/3%. Nauðsynlegt er að lagfæra frv. að þessu leyti og um það fjallar 3. gr. þessa litla frv.