Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég hlýt að lýsa miklum vonbrigðum með þessi svör. Þannig háttar til að í sjútvn. liggur erindi frá forsvarsmönnum þessa hóps um lagfæringar og ekki hafa fengist nein svör við því hvort um eitthvert slíkt verði að ræða. Menn hafa þar af leiðandi, til viðbótar þeirri óvissu sem fólgin er í hinu þvingaða vali, búið við þá óvissu að veðja á það hvort hugsanlega yrði um einhverjar lagfæringar að ræða síðar meir. Þannig standa t.d. þeir aðilar frammi fyrir því sem eru að velta fyrir sér valinu og/eða því hvort þeir eigi að selja sína báta og hætta í útgerð, að þeir vita í raun ekkert við hverju er að búast í þessum efnum.
Ég er þeirrar skoðunar að meðferðin sem þessi hópur er að fá þarna sé til muna lakari en til að mynda sambærilega eða tiltölulega sambærilega settur hópur krókabáta fékk á árinu 1994 og það muni koma á daginn að hér sé um að ræða mjög ljótt brot á svonefndri jafnræðisreglu ef borin er saman staða þessara tveggja hópa sem settir eru í þær aðstæður að þurfa að velja með tilteknum hætti.
Ég vil því aftur ítreka þá spurningu til hæstv. sjútvrh., þó að þetta hafi ekki verið rætt innan hæstv. ríkisstjórnar, hvort hæstv. ráðherra sé tilbúinn til að kynna sér það erindi sem liggur fyrir sjútvn. um lagfæringar á stöðu þessa hóps áður en endanlegt afsvar verður gefið í málinu.