Aflaheimildir dagróðrabáta

Mánudaginn 01. mars 1999, kl. 15:43:24 (4193)

1999-03-01 15:43:24# 123. lþ. 74.1 fundur 306#B aflaheimildir dagróðrabáta# (óundirbúin fsp.), sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 123. lþ.

[15:43]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég hef aldrei skorast undan því að lesa erindi sem til mín er beint eða athugasemdir sem ráðuneytinu berast, en ítreka að öðru leyti það sem ég hef áður sagt um þetta mál bæði í fyrri ræðu minni nú og eins varðandi sams konar fyrirspurn sem kom fram í þessum fyrirspurnatíma fyrir hálfum mánuði síðan.