Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breyting á lögum um eftirlit með útlendingum, fyrir hönd allshn.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Benedikt Bogason frá dóms- og kirkjumrn.
Í frv. er lagt til að forstjóri skipaður af ráðherra veiti Útlendingaeftirlitinu forstöðu, en stofnunin heyrir nú undir ríkislögreglustjóra. Þá er lagt til að stofnuninni verði falið að annast útgáfu vegabréfa. Helstu rökin fyrir þessari breytingu eru að þau málefni sem Útlendingaeftirlitið sinnir eru ekki í eðli sínu lögreglustörf og því óeðlilegt að ríkislögreglustjóri sé yfirmaður stofnunarinnar. Þá er ljóst að fleiri verkefni munu flytjast til stofnunarinnar á næstunni.
Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins.
Allir nefndarmenn skrifa undir álitið.