Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Í stefnu ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar í byggðamálum eru sett fram göfug markmið í mörgum liðum og allítarlegu máli. Framkvæmdir sömu ríkisstjórnar ganga hins vegar í þveröfuga átt við það sem hér er lagt til. Hér er því á ferðinni öfugmælabæklingur. Hér eru á ferðinni kosningaloforð sem hafa verið svikin á liðnu kjörtímabili, kosningaloforð sem verða svikin á næsta kjörtímabili ef þessi ríkisstjórn fær áfram brautargengi. Ég get ekki samþykkt þennan öfugmælabækling. Ég sit hjá.