Vísindasiðanefnd

Miðvikudaginn 03. mars 1999, kl. 18:20:51 (4319)

1999-03-03 18:20:51# 123. lþ. 77.12 fundur 507. mál: #A vísindasiðanefnd# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., KF
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 123. lþ.

[18:20]

Katrín Fjeldsted:

Herra forseti. Þó að ég geti tekið undir þau orð fyrirspyrjanda að gæta þurfi hlutleysis og yfirsýnar í máli sem þessu þá langar mig samt að koma upp og verja þann einstakling sem þarna um ræðir sem valinkunnan sæmdarmann. Af kynnum mínum við hann verð ég að segja að hann er alveg fær um að aðgreina þessa hagsmuni.