Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Ég þakka þeim þingmönnum sem tekið hafa þátt í þessu og tek undir orð hv. þm. Katrínar Fjeldsted um það að stjórnvöldum er sannarlega mikill vandi á höndum við að greiða úr þeim gífurlegu flækjum sem augljóslega verða uppi í sambandi við gerð miðlægs gagnagrunns samkvæmt lögunum.
Ég vil jafnframt í framhaldi af orðum síðasta hv. þm., Tómasar Inga Olrichs, nefna það að þingmaðurinn er hér að klifa á atriðum sem eru óskyld því sem við erum að fjalla um hér og komu mikið til umræðu í sambandi við frv. um miðlægan gagnagrunn, þar sem verið er að gera tortryggilegt það sem gerist á vegum Krabbameinsfélagsins lögum samkvæmt og verið að draga úr gildi upplýsts samþykkis í sambandi við þær rannsóknir sem stunda á eftir lögunum um miðlægan gagnagrunn.
Um svar hæstv. ráðherra, varðandi fyrri liðinn, um það hvort ráðuneytið sé undir það búið að útiloka frá aðild þá sem eru í hagsmunaárekstrum, vil ég segja að ég þakka þau viðbrögð að ráðuneytið muni að sjálfsögðu í þessu máli sem öðrum ekki taka þátt í ákvörðunum þar sem hagsmuna\-árekstrar eru. Þetta er efnilega það sem ég skildi af svari hæstv. ráðherra. En spurningin er: Gerir hæstv. ráðherra ráð fyrir því að auðvelt verði að fá upplýsingar um þessi hagsmunatengsl? Hvernig ætlar ráðuneytið að nálgast þær upplýsingar?
Varðandi seinni lið fsp. þá er það auðvitað mjög mikils virði fyrir sjúklinga að vita hvaða læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn hafna því að afhenda trúnaðarupplýsingar. Eins og fram kemur í fsp. sjálfri er undanskilið það atriði ef sjúklingurinn sjálfur óskar skriflega eftir. Fyrir því er séð í sjálfum lögunum. Þetta nefni ég hér vegna þess sem fram kom hjá hv. þm. Katrínu Fejldsted.
Í þessari umræðu sjáum við inn í þann frumskóg hagsmunaárekstra sem augljóslega verða til staðar þegar kemur að framkvæmd laganna. En skrifleg svör við fimm öðrum fyrirspurnum um þessi mál eru væntanlega á leiðinni frá hæstv. ráðherra.