ERL fyrir PP

Laugardaginn 06. mars 1999, kl. 10:34:31 (4355)

1999-03-06 10:34:31# 123. lþ. 79.95 fundur 324#B ERL fyrir PP#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 123. lþ.

[10:34]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem Páll Pétursson, 1. þm. Norðurl. v., getur ekki vegna veikinda sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Norðurl. v., Elín R. Líndal bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Formaður þingflokks Framsfl.,

Valgerður Sverrisdóttir.``

Kjörbréf Elínar Líndal hefur verið samþykkt. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.