Skaðabótalög

Laugardaginn 06. mars 1999, kl. 12:15:16 (4367)

1999-03-06 12:15:16# 123. lþ. 79.5 fundur 183. mál: #A skaðabótalög# (margfeldisstuðull við bótaútreikning o.fl.) frv. 37/1999, KH
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 123. lþ.

[12:15]

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Hv. 4. þm. Reykv. vitnaði til sérfræðinga sem teldu ekki rétt að telja upp til hvaða atriða ætti að taka tillit við uppkvaðningu dóma, en það hef ég einnig gert. Ég hef einnig vitnað til sérfræðings, sérstaks sérfræðings í því efni, og þar á ég vitaskuld við umboðsmann barna.