Árni M. Mathiesen:
Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður og hv. 1. flm. tillögunnar var að velta því fyrir sér hvað væri útlagaríki. Ég ætla svo sem ekkert að reyna að svara fyrir hæstv. utanrrh., sem hann vildi að skýrði þetta út fyrir sér, en ég ímynda mér að þar sé átt við ríki eins og Líbíu. Hann spyr líka: Hverjir ákveða hvaða ríki eru útlagaríki? Það gera þessi ríki sjálf því að þau ákveða að hegða sér á þann hátt að gengur þvert á það sem önnur ríki í heiminum gera.
Hvað kemur það okkur við hér uppi á Íslandi? spyr hv. þm. Það er ekkert óskaplega langt til Lockerby. Lockerby er lítill bær í Vestur-Skotlandi sem ég þekki ágætlega vel til í. Og þotan sem brotlenti þar eftir sprengingu skæruliðanna hefði alveg eins getað brotlent hér einhvers staðar í kringum Ísland. Það er ekkert mjög langt á milli flugstjórnarsvæðanna, þau snertast yfir Atlantshafinu. Þetta skýrir kannski eitthvað fyrir hv. þm. hvernig ég og vonandi aðrir líta á þetta, en hæstv. utanrrh. svarar kannski sjálfur fyrir sig seinna. (Gripið fram í: Fyrir lýðræðissinnana?) Lykilorð, hv. þm.
Hins vegar kemst ég ekki hjá því að lýsa því að hvernig umræðan hefur farið fram, hverjir hafa stigið fram í umræðunni og látið til sín taka, hefur valdið mér miklum vonbrigðum. Ég átti satt að segja von á því að framhald yrði á þeirri samstöðu sem verið hefur í utanríkis- og öryggismálum þjóðarinnar og að lýðræðisflokkarnir stæðu saman í afstöðu sinni og stæðu saman að nál. um tillögu eins og þá sem verið er að fjalla um þar sem er beinlínis stefnt að því að gengið verði úr NATO og að varnarliðið hverfi á braut. Í stað þess hafa hv. fyrrv. þingmenn Alþfl. kosið að drepa málinu á dreif í nál. sínu og hafa jafnvel verið með hreina útúrsnúninga.
Óljós yfirlýsing í niðurlagsorðum nál. er ekki til þess fallin að gera málin skýrari, sérstaklega í ljósi þeirra orða sem hv. þm. Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþb. og talsmaður Samfylkingarinnar, hafði í fyrri umræðu um þetta þingmál en þar lýsti hún því yfir að hún væri hlynnt tillögunni og að Samfylkingin gæti tekið undir tillöguna. Hins vegar kemur fram í niðurlagsorðum nál. að þeir þrír þingmenn sem undir það rita styðji ekki tillöguna. Það kemur hins vegar ekkert fram um það hvernig þeir ætli sér að greiða atkvæði eða hvort þeir ætli yfir höfuð að greiða atkvæði. Það liggur ekki enn þá ljóst fyrir.
Ég efast hins vegar ekki um hvernig hv. fyrrv. þingmenn Alþfl., Össur Skarphéðinsson og Sighvatur Björgvinsson munu greiða atkvæði. Mér er það fullkomlega ljóst og efast ekkert um að það sem þeir hafa um það sagt muni ganga eftir og að það er í samræmi við það sem þeir hafa áður sagt og gert, a.m.k. það sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson hefur sagt og gert síðan hann var í Alþb.
Eins og ég sagði hefur það valdið mér miklum vonbrigðum að sú samstaða sem ríkt hefur á milli lýðræðisflokkanna er rofin. Þessi samstaða hefur verið hornsteinn að utanríkis- og öryggisstefnu þjóðarinnar og ég get ekki leynt því að það veldur mér áhyggjum að hún skuli ekki lengur vera til staðar. Ég harma mjög að hv. fyrrv. þingmenn Alþfl. skuli frekar kjósa að gera málamiðlanir við Alþb. sem, eins og komið hefur fram, eru bæði óljósar og sýna að stefnan þar er mjög tvístígandi og ef maður ætlar að vera mjög jákvæður getur maður í besta falli sagt að þar sé um einhverja tímabundna stefnu að ræða.
Ekki þarf að fara mjög löngum orðum um þetta. Ég harma mjög að þetta skuli vera niðurstaðan og ég harma mjög að þessir ágætu hv. þingmenn skuli haga málflutningi sínum á þennan hátt. Ég harma mjög að það skuli vera ríkjandi tvístígandi í stefnu og málflutningi Samfylkingarinnar í utanríkis- og öryggismálum þjóðarinnar. Ég held að það sé ekki gott fyrir Samfylkinguna og ég held að það sé síður en svo gott fyrir þjóðina að þannig sé málum háttað hjá stjórnmálaafli sem telur sig eiga góða möguleika til að takast á við landstjórnina eins og kom fram í ræðu hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar. Ég ætla sjálfur ekki að leggja mat á það en sé það rétt sem kom fram hjá hv. þm. hlýtur það að vera ljóst að talsmaður Samfylkingarinnar gæti hugsanlega verið næsti utanrrh. þjóðarinnar. Þá er það ekki bara vont fyrir Samfylkinguna að vera tvístígandi í utanríkis- og öryggismálum heldur er það beinlínis hættulegt fyrir þjóðina.