Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það hefur verið ágreiningur um afgreiðslu þessa frv. um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð sjómanna. Sá ágreiningur lýtur einkum að vanda sjóðsins sem tengist svonefndri 60 ára lífeyristökureglu. Í bígerð er að reyna að ná betra samkomulagi um afgreiðslu þessa máls. Væntanlega verður gefin út yfirlýsing varðandi málið við 3. umr., ef ég veit rétt. Með vísan til þess munum við sitja hjá í atkvæðagreiðslu um þetta mál nú við 2. umr.