Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Af hálfu talsmanns sjútvn. áðan heyrðum við að orðalagið ,,hið fyrsta`` vísaði á næsta ár. Hv. þm. telur þá að það sé það ráðrúm sem eðlilegt sé að ríkisstjórnin fái til að undirbúa málið en síðan beri henni að framkvæma þingviljann. Ég tel að sá vilji eða þær niðurstöður sem fram hafa komið í skoðanakönnunum, sem eru mjög athyglisverðar í málinu, endurspegli þá tilfinningu Íslendinga að við eigum að halda fyrir okkur réttinum til að nýta auðlindir okkar. Ég held það endurspegli fyrst og fremst það eðlilega sjónarmið. Auðvitað er gott að hafa þann bakstuðning staðfestan, líka gagnvart öðrum þjóðum. Ég hef ekki þá grundvallarafstöðu að það komi aldrei til greina að hefja hvalveiðar. Það er ekki afstaða mín. Ég tel hins vegar að þær forsendur séu ekki til staðar á Alþingi að við eigum að fara að álykta um málið eins og gert er ráð fyrir í till. meiri hlutans, ég tel að það sé í raun mikið óráð og ég vara eindregið við því.