Aðgerðir til að draga úr þunglyndi kvenna

Þriðjudaginn 09. mars 1999, kl. 21:34:42 (4578)

1999-03-09 21:34:42# 123. lþ. 82.19 fundur 98. mál: #A aðgerðir til að draga úr þunglyndi kvenna# þál., Frsm. ÖS
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 123. lþ.

[21:34]

Frsm. heilbr.- og trn. (Össur Skarphéðinsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um fyrirbyggjandi aðgerðir til að draga úr þunglyndi kvenna. Heilbr.- og trn. hefur fjallað ítarlega um málið á fundum sínum og henni hafa borist umsagnir frá Skrifstofu jafnréttismála, Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa sem og heilbr.- og trmrn.

Í tillögunni er gert ráð fyrir að heilbrigðisráðherra verði falið að setja á fót nefnd sem hafi það hlutverk að kanna hvort og þá hvaða fyrirbyggjandi aðgerðir geti orðið til að draga úr þunglyndi meðal kvenna og að tillögum nefndarinnar verði síðan fylgt eftir með sérstöku átaki heilbrigðisyfirvalda.

Eftir þá yfirferð varð nefndin sammála um að leggja til að tillögunni yrði vísað til ríkisstjórnarinnar. Við afgreiðslu málsins voru fjarverandi hv. þingmenn Sólveig Pétursdóttir, Guðni Ágústsson og Ásta R. Jóhannesdóttir. Ég læt þess getið, herra forseti, að áheyrnarfulltrúi þingflokks óháðra, hv. þm. Ögmundur Jónasson, er samþykkur þessu áliti. Undir það rita ég sem frsm. og formaður, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Siv Friðleifsdóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Bryndís Hlöðversdóttir og Sigríður Anna Þórðardóttir.