Frekari umfjöllun um þáltill. um jarðgöng á Austurlandi

Þriðjudaginn 09. mars 1999, kl. 23:58:43 (4620)

1999-03-09 23:58:43# 123. lþ. 82.96 fundur 338#B frekari umfjöllun um þáltill. um jarðgöng á Austurlandi#, ArnbS (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 123. lþ.

[23:58]

Arnbjörg Sveinsdóttir (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég leit svo á að forseti hefði frestað umræðu um tillögu um jarðgöng milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar. Það var a.m.k. það sem hann sagði rétt áðan. Nú fer hann í forsetastól mjög efnislega yfir það mál. Ég spyr hann því: Er komið að umræðu um það mál aftur nú?