Frekari umfjöllun um þáltill. um jarðgöng á Austurlandi

Þriðjudaginn 09. mars 1999, kl. 23:59:25 (4622)

1999-03-09 23:59:25# 123. lþ. 82.96 fundur 338#B frekari umfjöllun um þáltill. um jarðgöng á Austurlandi#, EgJ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 123. lþ.

[23:59]

Egill Jónsson (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er sérstakt við þennan málatilbúnað virðulegs forseta að hann ber fyrir sig ástæður sem ekki voru neinar til. Ekki kom ein einasta gagnrýnisrödd um það þótt hæstv. forseti frestaði málinu. Svo einkennilegt sem það er þá er forsetinn að búa sér til málaástæður í þessum efnum. Hver skyldi vera ástæðan fyrir því? Ekki ætla ég að svara fyrir hæstv. forseta en kannski hefur það eitthvað kitlað tilfinningar forsetans að hann átti það mál sjálfur sem var verið að ræða og afgreiða.