Stofnun þjóðbúningaráðs

Miðvikudaginn 10. mars 1999, kl. 11:55:33 (4681)

1999-03-10 11:55:33# 123. lþ. 83.43 fundur 203. mál: #A stofnun þjóðbúningaráðs# þál. 20/123, Frsm. SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 123. lþ.

[11:55]

Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um stofnun þjóðbúningaráðs frá menntmn.

Íslenskir búningar eru hluti af íslenskri menningu og setja svip á hátíðisdaga þjóðarinnar. Séu þeir bornir af kunnáttu eru þeir vel til þess fallnir að vekja athygli á íslenskri menningu. Þeir eru arfleifð sem ber að vernda og virða og því mikilvægt að varðveita þekkingu á þeim og gerð þeirra.

Í tillögunni er lagt til að þjóðbúningaráði verði falið að setja upp ráðgjafarþjónustu sem afli heimilda um íslenska þjóðbúninginn og sinni á sem aðgengilegastan hátt miðlun upplýsinga til almennings. Auk þess verði því falið að stuðla að því að sérfræðingur með menntun á sviði búninga og textíla verði ráðinn hið fyrsta við Þjóðminjasafn Íslands. Verkefni sérfræðingsins yrði m.a. að vinna úr og ganga frá skrám, sýnishornum og upplýsingum sem safnið fengi frá leiðbeiningarþjónustunni sem ráðinu yrði falið að starfrækja, auk þess að vinna að rannsóknum á sviði búninga og textíla.

Í tillögunni er enn fremur lagt til að ráðinu verði falið að beita sér fyrir því að markviss fræðsla um íslenska þjóðbúninga verði tekin upp í grunnskólum landsins jafnframt því að kennurum og kennaraefnum verði séð fyrir staðgóðri þekkingu á þeim. Til að viðhalda þekkingu á íslenskum þjóðbúningum verður að telja æskilegt að kynning á þeim fari fram á einhverju stigi grunnskólans, t.d. í tengslum við kennslu í sögu eða samfélagsfræði.

Það er viðeigandi að samþykkja tillöguna á þessu þingi, einkanlega í tilefni þess að aldamót fara í hönd. Það er ágætisafmælisgöf að beina kastljósinu að íslenska þjóðbúningnum.

Menntmn. mælir með því að tillagan verði samþykkt.