Kræklingarækt

Miðvikudaginn 10. mars 1999, kl. 11:58:17 (4682)

1999-03-10 11:58:17# 123. lþ. 83.40 fundur 241. mál: #A kræklingarækt# þál. 19/123, Frsm. KHG
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 123. lþ.

[11:58]

Frsm. sjútvn. (Kristinn H. Gunnarsson):

Herra forseti. Á þskj. 272, 241. mál, er að finna till. til þál. um stuðning ríkisvaldsins við kræklingarækt og annan fjörubúskap sem þingmennirnir Ólafur Hannibalsson og Guðjón Guðmundsson flytja.

Sjútvn. hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigmar Arnar Steingrímsson, Guðrúnu Þórarinsdóttur og Hrafnkel Eiríksson frá Hafrannsóknastofnuninni. Umsagnir hafa ekki borist um málið.

Nefndin tekur undir markmið tillögunnar og telur þarft mál að huga að undirbúningi skeldýraeldis hér við land, meðal annars með því að efla rannsóknarstarf Hafrannsóknastofnunarinnar á þessu sviði. Ekki er einsýnt um að breyta þurfi löggjöf og eru því lagðar til breytingar á tillögutextanum.

Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar með svofelldri breytingu:

Tillögugreinin orðist svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa, með lagasetningu ef þarf, kræklingaeldi og hvers konar annan fjörubúskap sem ætla má að verði á næstu árum tekinn upp á lögbýlum sem aðgang eiga að sjó og að sjá til þess að á viðeigandi rannsóknastofnunum verði sú sérfræðiþekking fyrir hendi sem að haldi má koma og þarf til þess að leiðbeina væntanlegum ræktendum skelfisks og hafa fullnægjandi eftirlit með framleiðslu þeirra í samræmi við kröfur einstakra markaða.

Undir nál. rita Kristinn H. Gunnarsson, Guðmundur Hallvarðsson, Lúðvík Bergvinsson, Svanfríður Jónasdóttir, Einar Oddur Kristjánsson, Árni R. Árnason, Vilhjálmur Egilsson, Stefán Guðmundsson og Hjálmar Árnason.