Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Að sjálfsögðu er sanngjarnt að taka gjald fyrir veitta þjónustu eins og segir í 1. málsl. þessarar greinar. Ég er enn sem fyrr algerlega mótfallin gjaldtöku fyrir aðgang af landsvæðum. Ég vek athygli á því að Ferðamálaráð hefur ítrekað ályktað á þann veg á undanförnum árum. Vissulega þarf að vera möguleiki til að taka á þeim vanda ef spjöll hafa orðið á landi eða náttúru eða ef hætta er á spjöllum. Það úrræði hefur Náttúruvernd ríkisins í heimild samkvæmt 19. gr., til að takmarka umferð eða hreinlega loka svæðum tímabundið. Það úrræði á að duga fyllilega en ég mótmæli gjaldtöku fyrir aðgang og greiði atkvæði gegn þessum hluta greinarinnar.