Stjórn fiskveiða

Fimmtudaginn 11. mars 1999, kl. 16:07:58 (4978)

1999-03-11 16:07:58# 123. lþ. 87.11 fundur 612. mál: #A stjórn fiskveiða# frv. 9/1999, Frsm. KHG
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur, 123. lþ.

[16:07]

Form. sjútvn. (Kristinn H. Gunnarsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur sameinast um að flytja frv. það sem er að finna á þskj. 1195. Auk nefndarmanna er áheyrnarfulltrúi þingflokks óháðra samþykkur frv.

Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Breytingarnar lúta að veiðum krókabáta og er markmið þeirra að ná frekari sátt um fiskveiðistjórn þeirra og gera mönnum kleift að halda áfram útgerð þessa bátaflota. Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru eftirfarandi:

Að bátum sem veiða samkvæmt sóknardagakerfi á grundvelli 6. gr. laganna verði heimilað að stunda veiðar fram til 31. október ár hvert í stað 30. september eins og núgildandi lög gera ráð fyrir.

Að sett verði þrengri mörk fyrir fækkun sóknardaga milli fiskveiðiára þannig að þeim verði aldrei fækkað um meira en 10% á milli ára í stað 25% eins og er í gildandi lögum.

Að bátum sem nú stunda veiðar samkvæmt sóknardagakerfi og hafa valið að stunda veiðar með krókaaflamarki frá og með fiskveiðiárinu 2000/2001 verði heimilað að fá úthlutað þorskaflahámarki og stunda veiðar samkvæmt því frá og með 15. apríl 1999 til 31. ágúst 2000. Þetta val mun einungis geta átt sér stað einu sinni og bátar geta ekki horfið frá vali sínu eftir að það hefur verið tilkynnt.

Að eigendum báta verði gefinn kostur á því að endurskoða val milli sóknardagakerfis og krókaaflamarks. Með þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu breytast forsendur og því er réttlætismál og í samræmi við góða stjórnsýsluhætti að gefa mönnum kost á að velja að nýju við þessar aðstæður. Fresturinn er framlengdur og verða menn að velja fyrir 15. apríl 1999, þ.e. tilkynning að berast í síðasta lagi 14. apríl.

Að við ákvæði til bráðabirgða XXIV í lögunum verði bætt reglu um að veiðar krókaaflamarksbáta úr öðrum stofnum en þar eru tilgreindir séu ekki bundnar aflatakmörkunum.

Að jöfnunarúthlutun samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XXV í lögunum verði ákveðin 3.000 tonn á ári og sé sú úthlutun óháð öðrum úthlutunum samkvæmt lögunum.

Að ákveðin verði viðmiðunardagsetning um hvenær bátar þurfi að hafa verið minni en 200 brúttótonn til að eiga rétt á úthlutun samkvæmt bráðbirgðaákvæði XXV. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að menn fari að laga báta að lagaákvæðinu en engin vísiregla er um við hvaða tímamark á að miða, hvort miða eigi við stærð ár hvert eða í upphafi eins og frumvarpið gengur út á.

Á sama hátt verði fastákveðið við hvaða tíma miða skuli 5% aukningu aflahlutdeildar báta minni en 10 brúttórúmlestir eða 10 brúttótonn.

Að jöfnunarúthlutun verði flutt milli báta við endurnýjun með kaupum eða nýsmíði, enda sé ekki samið um annað. Auk þess verði sjávarútvegsráðherra veitt heimild til að rétta hlut þeirra sem endurnýjað hafa skip sín frá 1. september 1997 og fram til gildistöku þessara laga þannig að sambærilegar reglur gildi um þá báta og aðra sem endurnýjaðir eru síðar. Er gert ráð fyrir því að sjávarútvegsráðherra setji hlutlægar reglur um þessa úthlutun.

Loks er lagt til, herra forseti, að lögin öðlist þegar gildi.

Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. en ekki er gerð tillaga um að vísa því til nefndar.