Framhaldsfundir Alþingis

Fimmtudaginn 25. mars 1999, kl. 10:32:36 (0)

1999-03-25 10:32:36# 123. lþ. 90.91 fundur 402#B framhaldsfundir Alþingis#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 123. lþ.

[10:32]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands hefur gefið út svofellt bréf:

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt.

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda, fimmtudaginn 25. mars 1999 kl. 10.30.

Gjört á Bessastöðum, 19. mars 1999.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Ég býð hæstv. forseta, hv. alþingismenn, svo og starfsmenn Alþingis velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.