Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Fyrir hönd Samfylkingarinnar flyt ég yfirlýsingu vegna þess að frá því að við hittumst hér síðast hefur ríkisstjórnin ítrekað kynnt opinberlega ýmsar fyrirætlanir á sviði skólamála, samgangna og í tengslum við aldraða sem hafa áhrif á fjárreiður ríkisins á þessu og næstu árum.
Alþingi fer með fjárveitingavaldið en ekki ríkisstjórnin. Fjárlög fyrir yfirstandandi ár hafa verið afgreidd. Samkvæmt lögum um fjárreiður ríkisins geta ófyrirséð atvik komið upp á og inna þarf greiðslur af hendi eða afla heimilda fyrir sérstakar fjárráðstafanir sem ekki er gert ráð fyrir í fjárlögum. Í 33., 43. og 44. gr. fjárreiðulaga eru skýr ákvæði um slíka málsmeðferð.
Ýmsar af þeim fyrirætlunum sem ríkisstjórnin hefur kynnt undanfarið rúmast ekki innan núgildandi fjárlaga og falla ekki undir ófyrirséð atvik auk þess sem þau ná yfir mörg ár. Hér er því á ferðinni, herra forseti, ekkert annað en kosningaáróður ríkisstjórnarinnar.
Nýtt þing verður kosið í vor og núverandi ríkisstjórn getur ekki bundið hendur þess né næstu ríkisstjórna. Það er ekki hægt að framfylgja slíkum fyrirætlunum samkvæmt gildandi lögum. Samfylkingin mótmælir þessum vinnubrögðum. Mörg þessara mála eru eðlileg og byggð á tillögum Samfylkingarinnar og studd af henni. Samfylkingin er reiðubúin að taka til umræðu núna og á næstu dögum hugmyndir sem bæta stöðu ýmissa í samfélaginu og afgreiða nauðsynlegar fjárheimildir eða gera breytingar á lögum. Samfylkingin styður eindregið aðgerðir til að bæta stöðu aldraðra, en bendir á að ríkisstjórnarflokkarnir hafa margoft fellt tillögur okkar um úrbætur í þeim efnum. (Forseti hringir.) Framkvæmdir í samgöngumálum sem nú eru lagðar til af byggðanefnd eru vitaskuld studdar af Samfylkingunni og Samfylkingin er reiðubúin til að afgreiða heimildir vegna þess. (Forseti hringir.)
Ég óska að hæstv. forseta sé ljóst að Samfylkingin er reiðubúin, herra, forseti, --- ég er að ljúka máli mínu --- að taka þann tíma sem þarf til að afgreiða þau mál sem fyrir þinginu liggja (Forseti hringir.) og þau önnur sem kynnt hafa verið í fjölmiðlum. Samfylkingin styður ýmis (Forseti hringir.) þeirra en átelur ríkisstjórnina harðlega fyrir að sýna Alþingi og þjóðinni óvirðingu (Forseti hringir.) og beita óvönduðum vinnubrögðum í upphafi kosningabaráttunnar.
(Forseti (ÓE): Svona yfirlýsing hlýtur náttúrlega að kalla á umræður.)