Yfirlýsing frá Samfylkingunni

Fimmtudaginn 25. mars 1999, kl. 10:44:22 (0)

1999-03-25 10:44:22# 123. lþ. 90.92 fundur 403#B yfirlýsing frá Samfylkingunni# (aths. um störf þingsins), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 123. lþ.

[10:44]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Ég vil minna hæstv. forseta Alþingis á að fyrir hönd þingflokks óháðra gekk ég eftir því við hæstv. forseta að fá upplýsingar um hvort samkomulag ríkti um það að ljúka þinghaldinu án pólitískra yfirlýsinga og pólitískra umræðna. Tilefni til slíkra umræðna er ærið en ég og þingflokkur óháðra gekk út frá því að um þetta ríkti samkomulag. Þessari spurningu leyfi ég mér að beina til hæstv. forseta Alþingis.