Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti kannast við þau orð sem hv. þm. nefndi og vissi ekki til að umræða yrði hafin um nokkurt mál annað en það sem á dagskrá væri. Óskað var eftir því rétt áður en fundur hófst að hv. þm. fengi að gefa yfirlýsingu og fylgdi með að hún mundi ekki kalla á umræður. Þess vegna leyfði forseti hv. þm. að taka til máls.