Þingfrestun

Fimmtudaginn 25. mars 1999, kl. 11:20:52 (0)

1999-03-25 11:20:52# 123. lþ. 91.96 fundur 410#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur, 123. lþ.

[11:20]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands hefur gefið út svofellt bréf:

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 123. löggjafarþings, frá 25. mars 1999.

Gjört á Bessastöðum, 23. mars 1999.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 123. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.