Fjárlög 1999

Mánudaginn 05. október 1998, kl. 17:59:59 (91)

1998-10-05 17:59:59# 123. lþ. 3.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1999# frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 123. lþ.

[17:59]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki almennilega á hvar misskilningurinn liggur. Það sem ég sagði áðan og ætla að endurtaka er að til þessa málaflokks, til hjúkrunarheimila, er varið 322 millj. kr. Það er ekki verið að flytja það yfir til heilbrrn. frá félmrn. eins og mér skilst að hv. þm. vilji vera láta.