Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Varðandi endurskoðun á lögum um málefni aldraðra, þá hefur hún verið í vinnslu um alllangt skeið, tveggja ára skeið. Frv. var nánast tilbúið í upphafi síðasta árs og fór þá í skoðun og umsögn. Margir hafa komið að því máli sem þurfa um það að fjalla og eru um það bil tveir mánuðir þar til við getum lagt það fyrir Alþingi. Það er sem sé alveg í lokavinnslu í ráðuneytinu.