Tilkynning um úrsögn úr þingflokki

Miðvikudaginn 14. október 1998, kl. 13:31:46 (322)

1998-10-14 13:31:46# 123. lþ. 10.91 fundur 57#B tilkynning um úrsögn úr þingflokki# (aths. um störf þingsins), KHG
[prenta uppsett í dálka] 10. fundur, 123. lþ.

[13:31]

Kristinn H. Gunnarsson:

Herra forseti. Fyrir rúmum þremur mánuðum var tekin ákvörðun á aukalandsfundi Alþb. um sameiginlegt framboð með Alþfl. og Kvennalista fyrir næstu alþingiskosningar. Ákvörðun aukalandsfundarins um sameiginlegt framboð án þess að málefnagrundvöllur lægi fyrir leiddi af sér að eðlisbreyting varð á umræðunni um samfylkingu stjórnarandstöðuflokkanna. Í stað þess að vera samstarf flokkanna til sóknar í næstu alþingiskosningum var markmiðið að sameiginlegt framboð leiddi til stofnunar nýs flokks í stað hinna þriggja og klofningur í Alþb. og Kvennalista var skilgreindur sem fórnarkostnaður sem yrði að reiða fram nú en mundi skila sér í góðum kosningaúrslitum í þar næstu alþingiskosningum árið 2003 undir fána hins nýja flokks.

Mikill ágreiningur er um þessa ákvörðun innan Alþb. og ljóst að hún mun sundra liðssveit flokksmanna og kjósenda umfram það sem hefur nú þegar komið fram. Ég hef ekki viljað lýsa yfir stuðningi við framboðið af þessum sökum en ákvað að bíða þess að fyrir lægi málefnalegur grundvöllur framboðsins og gerði mér vonir um að þar yrði að finna betrumbætur sem gæfu færi á að fylkja liðinu saman á nýjan leik. Nú liggur sá grundvöllur fyrir í öllum meginatriðum eftir að málefnaskrá flokkanna var kynnt á dögunum og því hægt að taka afstöðu til málsins á þeim forsendum. Þar er að finna ýmis góð fyrirheit en alla efnahagslega undirstöðu vantar í stefnuna og ef henni yrði hrint í framkvæmd leiddi hún til óstöðugleika og verðbólgu. Þar er um of haldið í gildandi reglur um þátttöku sjúklinga í lyfjakostnaði og kostnaði við heilbrigðisþjónustu og fráleitt er að mínu mati að íhuga aðild að Evrópusambandinu. Alvarlegast er þó viðhorfið til byggðamála þar sem þörfin er hvað mest á djarfhuga og róttækum aðgerðum til þess að styrkja byggð um landið og stöðva fólksflutningana suður.

Árlega flytjast um tvö þúsund manns suður af landsbyggðinni með tilheyrandi þjóðfélagslegum kostnaði og erfiðleikum fjölda manna. Í stað skilnings og stuðnings á þessu vandasama og erfiða úrlausnarefni er meginbaráttumál sameiginlega framboðsins að efna til sérstakrar skattlagningar um milljarða króna árlega á aðalatvinnuveg landsbyggðarinnar, sjávarútveginn. Þann skatt munu sjómenn og aðrir launamenn í atvinnugreininni greiða að lokum með lægri launum sínum. Þessi viðhorf styð ég ekki og hef ítrekað gert kröfu um að þeim verði breytt. Ljóst er nú að ekki verður orðið við þeim kröfum.

Þessi stefna mun ekki verða landsbyggðinni til gagns heldur mun hún frekar auka á strauminn suður. Nýir skattar af þessu tagi efla ekki byggð á Vestfjörðum. Ég treysti mér ekki til þess að standa að framboði á þessum grundvelli og mun ekki styðja sameiginlegt framboð Alþb., Alþfl. og Kvennalista.

Herra forseti. Í aðdraganda næstu alþingiskosninga munu þingflokkar þeirra flokka sem standa að sameiginlegu framboði leitast við að samræma afstöðu sína af augljósum ástæðum og þeir þingmenn sem hyggja á endurkjör verða að miða málflutning sinn við það. Í sumum málum svo sem varðandi veiðileyfagjald í sjávarútvegi mun ég lenda óhjákvæmilega í andstöðu við þá sem fylgja sameiginlegu framboði. Ég tel ekki rétt að efna til slíkra árekstra og trufla málflutning samfylkingarinnar innan frá. Ég tel eðlilegast að stíga úr röðum þeirrar fylkingar og tala fyrir sjónarmiðum mínum á eigin forsendum enda hef ég fullan hug á því að leggja störf mín og áherslur í dóm kjósenda í næstu alþingiskosningum.

Að vandlega athuguðu máli hef ég ákveðið að segja mig úr þingflokki Alþb. Þetta tilkynnist hér með, herra forseti.

Ég vil að lokum færa samstarfsmönnum mínum innan þingflokksins þakkir fyrir samstarfið á undanförnum árum og árna þeim velfarnaðar á þeim vettvangi sem þeir velja sér og læt í ljós þá ósk að störf þeirra megi verða landi og þjóð til heilla.