Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Fyrst minni ég á að ekki hefur verið ágreiningur við vísindasamfélagið um það að hrefnustofninn við Ísland og nokkrir aðrir hvalastofnar þyldu nýtingu. Ekki var ágreiningur um það við vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins. Þegar ákveðið var að stofna NAMMCO var samkomulag um það milli aðildarþjóðanna að ráðið skyldi einvörðungu fjalla um nýtingu sela og minni hvala sem falla ekki undir valdsvið Alþjóðahvalveiðiráðsins. Hrefna var þannig skilgreind utan við verksvið samtakanna. Við lýstum því hins vegar yfir af okkar hálfu að við mundum nota tímann til þess að vinna að því að valdsvið NAMMCO og verksvið yrði fært út, og lýstum því strax yfir og gerðum grein fyrir því að það mundi taka nokkurn tíma. Sú vinna hefur borið árangur og samstarfsþjóðir okkar þar hafa fallist á að taka m.a. hrefnu inn í vísindaathuganir sínar, athuganir varðandi eftirlit með veiðum og þar fram eftir götunum. Þetta er nauðsynlegt að liggi fyrir vegna misvísandi frásagnar fyrirspyrjanda í inngangi að fyrirspurn sinni.
Sem svar við fyrirspurninni get ég hins vegar sagt að ég hef ekki í hyggju að flytja þáltill. um að leyfa veiðar á hrefnu eða hvölum í atvinnuskyni en minni á að í vor var til athugunar af hálfu ráðuneytisins og á vegum ríkisstjórnarinnar að svara jákvætt ósk Hafrannsóknastofnunar um að hefja rannsóknir á efnahagslegum áhrifum þess að veiða ekki og nýta ekki hvalastofnana og þá einkum hrefnu og áhrif þess á aðrar tegundir. Til þess að framkvæma slíkar vísindalegar rannsóknir þarf veiðar í vísindaskyni og hefur Hafrannsóknastofnun gert grein fyrir því. Það er nú í skoðun í ráðuneytinu hvort rétt sé að taka þetta mál upp á nýjan leik og óhjákvæmilegt er að svara Hafrannsóknastofnun sem hefur óskað eftir leyfi til slíkra rannsókna. Í því sambandi minni ég á niðurstöðu NAMMCO-fundarins en í fréttatilkynningu frá honum segir svo um þetta efni:
,,Á síðasta ári var komist að þeirri niðurstöðu á grundvelli athugana af hálfu vísindanefndar NAMMCO að stofnar hrefnu, vöðusels og blöðrusels í Norður-Atlantshafi gætu haft veruleg bein eða óbein áhrif á mikilvæga nytjastofna sjávar. Frekari rannsóknum á fæðuvali þessara tegunda verður haldið áfram. NAMMCO hefur enn fremur hafið rannsóknir á efnahagslegu samspili sjávarspendýra og fiskveiða. Ákveðið hefur verið að beina athyglinni að afmörkuðum athugunarefnum svo sem að bera saman efnahagslega þýðingu þess annars vegar að nýta og hins vegar að nýta ekki stofna vöðusels og hrefnu.``
Það er í mjög góðu samræmi við þessa stefnumörkun NAMMCO sem Hafrannsóknastofnun hefur lagt áherslu á að fá heimild til þess að framkvæma slíkar rannsóknir með nauðsynlegum vísindalegum veiðum. Það er nú á ný til athugunar í ráðuneytinu hvort mál verður tekið upp með svipuðum hætti og áform voru uppi um í vor sem leið en eins og kunnugt er strandaði framgangur þess máls m.a. af tæknilegum ástæðum þar sem erfitt reyndist að útvega nauðsynleg skotfæri til þess að unnt væri að hrinda slíkri áætlun í framkvæmd á sl. sumri.