Smíði varðskips

Miðvikudaginn 14. október 1998, kl. 14:00:32 (335)

1998-10-14 14:00:32# 123. lþ. 10.3 fundur 30. mál: #A smíði varðskips# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., GE
[prenta uppsett í dálka] 10. fundur, 123. lþ.

[14:00]

Gísli S. Einarsson:

Herra forseti. Um leið og ég þakka hv. þm. fyrirspurnina vil ég lýsa sérstakri ánægju með ákvörðun ríkisstjórninnar og með tillögu hæstv. dómsmrh. um að varðskip verði smíðað hér heima. Ég er sannfærður um að við höfum hæfni og getu til þess að gera það og með ákveðnum útfærslum mun vel til takast með slíka smíði.