Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Það er auðvelt að svara því að sú ályktun sem hér er vitnað til og spurt um gefur ekki tilefni til sérstakra viðbragða af hálfu dómsmrn. Fundur framkvæmdastjóra tölvunefnda í Evrópu er ekki sérstök valdastofnun eða formleg stofnun á vegum Evrópusambandsins eða Evrópska efnahagssvæðisins og þar er því ekki á nokkurn hátt um að ræða yfirþjóðlegt vald sem við þurfum að beygja okkur fyrir eða taka tillit til. Þetta gefur ekki tilefni til þess af hálfu ráðuneytisins að fjalla sérstaklega um eða bregðast við. Hér er aðeins um að ræða óformlega samráðssamkomu framkvæmdastjóra tölvunefnda í þessum ríkjum og það er ekki hlutverk þeirrar samkomu að mæla fyrir um eða gefa sérstakar ábendingar til einstakra ríkja.
Þessi ályktun hefur gengið til heilbrrn. sem vann með alveg sérstökum og mjög opnum hætti að endurskoðun á gagnagrunnsfrv., setti það á netið og opnaði fyrir athugasemdir hvaðanæva að úr heiminum. Ég geri ráð fyrir því að heilbrrn. hafi tekið þessa ályktun til athugunar eins og allar aðrar ályktanir og athugasemdir sem ráðuneytið hefur fengið við endanlega gerð á gagnagrunnsfrv. og það er ekki tilefni til þess að bregðast öðruvísi við þeirri ályktun sem hér er verið að spyrjast fyrir um.