Upplýsingar um lyfjanotkun í gagnagrunn

Miðvikudaginn 14. október 1998, kl. 15:19:07 (373)

1998-10-14 15:19:07# 123. lþ. 10.11 fundur 53. mál: #A upplýsingar um lyfjanotkun í gagnagrunn# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 10. fundur, 123. lþ.

[15:19]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Ég hirði lítið um útúrsnúninga hv. þm. Ef hv. þm. veit ekki að sjúkraskrár eru ekki geymdar í Tryggingastofnun og heldur ekki í lyfjaverslunum, þá veit hann það nú. Í frv. stendur skýrum stöfum að það séu upplýsingar úr sjúkraskrám sem fari í miðlægan gagnagrunn. Þangað fara því engar upplýsingar frá þessum stofnunum sem ég hef hér nefnt og því ástæðulaust að ræða það meira hér.