Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir talaði um rétt sjúklings sem vill vera með í grunninum ef heilbrigðisstofnun eða jafnvel sérfræðingur neitar að upplýsingar um hann fari inn í grunninn, talaði um það að ef sjúklingur vildi bæta við upplýsingum um sjálfan sig, hvernig hann ætti að fara að því, þyrfti kannski að hafa fyrir því. Ég spyr hv. þm.: Ef upplýsingarnar í grunninum eru ópersónugreinanlegar, telur hv. þm. þá að hægt sé að finna sjúklinginn og bæta við upplýsingum um hann? Því að ef við finnum sjúklinginn í skránni, þá er hann náttúrlega ekki ópersónugreinanlegur. Við þurfum að hafa hann persónugreinanlegan til þess að geta fundið sjúklinginn og bætt við upplýsingum um hann eða a.m.k. hef ég skilið það þannig. Ég spyr því hv. þm.: Er hægt að finna sjúkling í gagnagrunninum til að bæta við upplýsingum um hann?